Spá um mönnunarþörf byggð á sögulegum upplýsingum.
ManPower er hugbúnaður sem gerir stjórnendum kleyft að nýta sögulegar upplýsingar um spurn eftir vöru og/eða þjónustu til að gera nákvæma spá um mönnunarþörf.
Er rétt mönnun?
Vaktaskipulagning á að taka mið af mönnunarþörf. Fyrirtæki búa við sveiflur í spurn eftir vöru og/eða þjónustu frá einum tíma til annars og flókið getur verið að setja saman skipulag vakta þar sem mönnun fylgir þessum sveiflum. Bæði er flókið að áætla hver mönnunarþörfin verður í framtíðinni og eins að raða saman vöktum sem endurspegla þá mönnunarþörf.
MP - Airport
er hugbúnaður sem les inn flugáætlun, gerir spá um farþegafjölda og fragt og reiknar út mönnunarþörf klukkustund fyrir klukkustund. Margir ólíkir verkþættir fara fram í þjónustu við flug eins og innritun, vegabréfaskoðun, verslun, veitingar, byrðing, hleðsla ofl. sem afar erfitt er að gera spá um mönnunarþörf fyrir án aðstoðar hugbúnaðar. MP-Airport er ætlað að auðvelda stjórnendum í flugþjónustu að gera spá um mönnunarþörf.
MP - Callcenter
er hugbúnaður sem les inn sögulegar upplýsingar um innhringingar, gerir spá um innhringingar og reiknar út mönnunarþörf klukkustund fyrir klukkustund. Spá fyrir þjónustuver þarf m.a að taka mið af atburðum, sveiflum í rekstri milli klukkustunda, daga, vikna eða árstíða ásamt skipulögðum viðburðum sem getur verið erfitt að framkvæma án aðstoðar hugbúnaðar. MP-Callcenter er ætlað að auðvelda stjórnendum þjónustuvera að gera spá um mönnunarþörf.
MP - Retail
er hugbúnaður sem les inn sögulegar upplýsingar um fjölda afgreiðslna og seldra stykkja, gerir spá um fjölda afgreiðslna og seld stykki ásamt því að reikna út mönnunarþörf klukkustund fyrir klukkustund. Spá fyrir verslun þarf m.a að taka mið af árstíðum (jól, páskar,..) sem og sveiflum í rekstri milli klukkustunda, daga, vikna og hvort afgreiðsla inniheldur marga eða fáa vöruliði sem getur verið erfitt að framkvæma án aðstoðar hugbúnaðar. MP-Retail er ætlað að auðvelda stjórnendum í verslun að gera spá um mönnunarþörf.
Reynsla okkar er að grunnurinn að aukinni framleiðni á vinnustund er nákvæm spá um mönnunarþörf sem er forsenda vaktaskipulagningar.
hafðu samband vaktaskipan@vaktaskipan.is