TimeCare

  

Vaktaskipan er sölu- & þjónustuaðili Time Care AB á Íslandi.

 

 

Sveigjanleg vaktaskipan.

 

Time Care er hugbúnaður sem auðveldar stjórnendum og starfsmönnum að skipuleggja vinnutíma & frítíma. Markmiðið er að innleiða sveigjanlegan vinnutíma þar sem jafnvægi ríkir milli vinnu & einkalífs um leið og stuðlað er að aukinni framleiðni á vinnustund.

 

 

Mikil reynsla.

 

Time Care hefur verið í stannslausri þróun síðastliðin 15 ár og verið innleitt hjá yfir 1000 fyrirtækjum og stofnunum í öllum atvinnugreinum. Við byggjum því hugbúnað, þjónustu og ráðgjöf á reynslu.

 

 

Auðvelt í uppsetningu.

 

Time Care hefur sennilega fengist við öll viðfangsefni vaktaskipulagningar og er mjög sveigjanlegt í uppsetningu og notkun. Þetta gerir kerfið auðvelt í uppsetningu og einfalt í notkun.

 

 

Hluti af stefnu fyrirtækja.

 

Árangursrík vaktaskipan er grunnur margra af okkar núverandi viðskiptavinum að aukinni samkeppnishæfni, lægri kostnaði og bættum lífsgæðum starfsmanna. Upphafið að árangursríkri stjórnun mannauðs er gott skipulag.

 

 

3 skref.

  

1. Spá um mönnunarþörf.

Stjórnandi gerir spá um mönnunarþörf í samræmi við eftirspurn. Hjá mörgum fyrirtækjum er hægt að nýta sögulegar upplýsingar um spurn eftir vöru og/eða þjónustu til að gera spá niður á klukkustund fyrir klukkustund og taka þar með tillit til allra þeirra sveiflna sem eru í rekstrinum.

 

2. Óskir um vinnutíma & frítíma.

Allir starfsmenn hafa eigin aðgang að Time Care á internetinu og geta þar með skipulagt eigin vinnutíma og frítíma sjálfir og lagt grunn að jafnvægi vinnu & einkalífs. Hægt er að sjá hvar mönnun er yfir eða undir skilgreindri mönnunarþörf og hafa fulla stjórn á nauðsynlegum breytingum á eigin óskum.

 

3. Lokaskipulag.

Stjórnandi reiknar lokaskipulag og ef mismunur er á óskum starfsmanna og spá um mönnunarþörf er hægt að reikna lokaskipulag með bestun en þá gerir kerfið nauðsynlegar breytingar á óskum svo að mönnun fylgi þörf.

 

Dæmin sanna að sveigjanleg tímastjórnun hefur í för með sér ávinning fyrir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra.

 

 

hafðu samband vaktaskipan@vaktaskipan.is

 

sjá einnig www.timecare.se