Viðveruskráning og útreikningur á tímum til launa.
TimeToPay er viðverukerfi þar sem starfsfólk skráir viðveru, stjórnendur hafa yfirlit yfir skipulag og viðveru ásamt því að reikna tíma til launa sem skilað er á því formi sem launakerfi krefjast.
Algjörlega samhæft Time Care
Kerfið nýtir til að mynda upplýsingar um starfsmenn, sérstaka frídaga, stórhátíðardaga og skipulag frá Time Care. Auk þess eru skilgreindir launaliðir og reiknireglur samkvæmt kjarasamning. Kerfið styður allar þarfir fyrirtækja og kjarasamninga varðandi reglur við útreikning á tímum til launa hvort sem starfsmenn hafa vinnuskyldu eða eru í tímavinnu.
Yfirlit skipulags og mætingar
TimeToPay gefur gott yfirlit yfir mætingu starfsmanna á móti skipulagi dag fyrir dag og niðurstöðu um mismun á unnum vinnustundum og skipulögðum vinnustundum. Auk þess reiknar kerfið tíma til launa fyrir hvern starfsmann, hvern dag og launalið sem gefur góðar upplýsingar fyrir stjórnendur til að fara yfir og samþykkja fyrir launaútreikning.
Tímar til launa
Niðurstöður um tíma til launa fyrir tiltekið launatímabil er hægt að skrifa út í Excel skjal eða textaskjal og lesa beint inn í launakerfi.